Danakonan í hugleyðingum...

Fátækur námsmaður í Danmörku sem lifir á núðlusúpum og ódýrum frostnum pizzum. Hefur mikinn áhuga á hönnun og list svo má ekki gleyma aðal drikk námsmannsinns...ískaldur Tuborg

23.10.2007 23:09:28 / klaraz

Ég held að það sé kominn tími á að gera eitthvað á þessu bloggi hérna!!!!

Jæja það er langt um liðið....

Er ekki alveg að nenna að halda úti þessu bloggi víst að maður er búinn að festa sig inn á MySpace8|...já já það má alveg kalla mig tölvunörd....

En það hefur margt gerst síðan ég bloggaði seinast svo sem: Ég fór til Íslands, Mamma og Bóbó giftu sig loksins, ég leysti mömmu af í vinnunni þegar hún fór í brúðkaupsferð, ég komst inn í skólann sem ég ætlaði mér að komast inn í, ég fór aftur til köben og byrjaði í náminu, erla eignaðist loksins lítinn prins:haha:, ég átti afmæli í gær og ég komst að því að ég þarf að nota gleraugu8|....sem kom mér í opna skjöldu.

En hvað með það, gengur alveg rosalega vel í skólanum og fyrir þá sem ekki vita er ég að læra tískuhönnun með sérfhæfingu í framleiðslu og get ég þá verið að vinna við skýslu vinnu sem unnin er áður en varan er send í framleiðslu, ég get líka verið að hanna föt og sauma, ég get séð um innkaup og unnið sem innkaupastjóri....semsagt þetta nám býður upp á hæst launuðustu störf í fata og textíl geiranum sem er ekki slæmt:haha:

Ég átti, rétt í þessu langt samtal við hana móður mína og var hún að koma frá viðtali sem hún var í með pabba sem verður sýnt á bylgjunni næstkomandi fimmtudagskvöld milli 10 og 12. Þátturinn heitir kvöldsögur sem er með Önnu Kristíne....  Í þættinum eru þau að tala um skilnaðinn og hvernig pabbi kom út úr skápnum og hvernig þau tókust á við það og ákváðu að vera vinir. Einnig tala þau um okkur systkinin, hvernig við tókumst á við skilnaðinn og hvernig stöndum uppi sem sjálfstæði einstaklingar í dag.  Mig kvíður svolítið að hlusta á viðtalið en mamma og pabbi voru búin að segja mér frá þessu og spurðu mig hvað þau mættu ganga langt....

Ég hef lítið annað að skrifa um í bili.....er orðinn frekar lélegur "bloggari"

Klaran 


» 4 hafa sagt sína skoðun

27.06.2007 20:07:35 / klaraz

Multimedia Designerinn

Þá er þetta loksins búið!!!!!

Ég er officially orðin margmiðlunar hönnuður:haha:......Útskriftin var á föstudaginn og var svo partý um kvöldið og voru nokkrir ölvaðari en aðrir hehehe....ekki ég þó, var ekkert að fá mér í glas allavega ekki eins og hinir;)

Var að kveðja mömmu áðan en hún var að fara heim....frekar tómlegt hérna í íbúðinni og engin læti í Eyþóri:cry:....En ég hitti þau eftir 2 vikur....já ég er að koma til Íslands eftir 2 vikur!!!! og Roskilde eftir viku...úúúúú ég get ekki beðið ég er orðin svo spennt.....gleymdi kanski að segja að við ætlum ekki að selja miðanna okkar, ákváðum bara að gefa skít í allt og fara bara....svo koma vandamálin seinna;)

En annars er ekki mikið að frétta héðan, bara búið að vera rigning og Eyþór ældi á mig áðan þannig að ég var öll út ötuð í ælu í strætó þannig að ég þurfti gjöra svo vel að kaupa mér eitthvað nýtt að neðan takk fyrir!!

Held að þetta sé komið gott....hef eitthvað lítið að segja núna....er eiginlega bara farin á Roskilde festivalið í huganum og hugsa ég lítið um annað á meðan....eða jú Renata var að eignast lítinn sætan prins þann 19.júní 2007 og langar mig bara að segja enn og aftur til hamingju og mig hlakkar til að sjá hann og ykkur:*

 

Margmiðlunar hönnuðurinn 


» 5 hafa sagt sína skoðun

19.06.2007 15:57:29 / klaraz

Langar þig/ykkur að fara á Roskilde festival eða vantar miða?

Ég er með 2 miða á Roskilde Festival og vantar að losa mig við þá, sökum þess að við komumst ekki...

Ég sel miðann á 2500 DKK og bý ég í Köben, þannig að ef þú/þið eruð á leiðinni til Köben og langar að skella þér/ykkur á Festivalið þá getur þú/þið náð í miðann/a:D

 

Áhugasamir sendið visamlegast mail á klara.rut@gmail.com (líka hægt að ýta á linkinn hér til vinstri "hafa samband")

 

Takk

 

Klara


» 1 hafa sagt sína skoðun

07.06.2007 21:01:07 / klaraz

Almost done!!!!!

Þá er ég búin að skila inn lokaverkefninu og verð ég að segja að ég er svooooo fegin!!!

Var búin að vaka í 3 sólahringa til þess að klára og á lokadeginum var ég og Jórunn vinkona, orðnar svo þreyttar að við vissum ekki hvað snéri upp eða niður en við náðum að skila og við förum í prófið 13.júní og er það afmælisdagur söngara hljómsveitarinnar sem við erum að gera verkefnið fyrir, þannig að ég vona að þetta verði gott karma þannig að við fáum góða einkunn;)

Þannig að síðan ég skilaði þá er ég búin að vera sofandi eða sötrandi:$.....Annars fór ég á Gus Gus tónleika 1.júní sem voru brilliant og líka pörfekt að komast á þá eftir allt stressið og geðveikina...

Annars er bara lítið í fréttum hér á bæ, kem til Íslands 13.júní og fer aftur 7.ágúst en það er allaveganna miðinn sem ég fékk, á kanski eftir að breyta honum ef ég þarf...þ.e.a.s ef ég fæ vinnu...annars verð ég hálf atvinnlaus í sumar...eða vinnu sem ég fæ borgað fyrir:(... Hef alveg nóg að gera í porfolio vinnu og einhverju fínpussa stússi og var ég að sækja um dagpeninga sem ég mun fá frá stéttafélagi sem ég er í og vona ég bara að ég fá þá til þess að geta "dúllað" mér í sólinni og gera almennilegt portfolio:haha:

Klaran  


» 8 hafa sagt sína skoðun

17.05.2007 20:47:59 / klaraz

Ég á sætasta litla bróðir í öllum heiminum og geiminum....

Ég fékk símtal áðan og á símanum stóð mamma....

Haldiði að litli bróðir minn hafi ekki bara hringt í mig, eða beðið móður sína í að hringja í mig því að honum langaði að tala við Klöru sína:haha: Hann stóð útí glugga eins og hann gerir vanalega og tók sig allt í einu til, náði í gsm símann hennar mömmu og sagði "eydó tala tölu mín"!!! Hann er nýoðinn 2ja ára. Það byrjuðu bara að streyma niður tár, þetta var svo hrikalega sætt og hann talaði við mig í 10 mínútur og það mátti enginn dirfast að skella á þar sem hann var að segja mér frá gröfunni hans pabba síns og hann fékk að moka, og hverjir væru apaheilar:cry: svo endaði símtalið með að hann sagði love you....þá komu náttúrulega fleiri tár:cry:

Ég varð að deila þessu með ykkur, þetta var svo einlægt og sætt..... og get ég ekki beðið eftir að fá að taka utan um hann og knúsa þegar hann kemur til mín í júní. Maður er alslaus án hans;)

 

Klaran í dramakasti


» 7 hafa sagt sína skoðun

14.05.2007 19:33:39 / klaraz

Þreytt

Guð hvað þetta var erfið helgi....

Var að vinna hjá Pétri frænda ogg var non stop allann tímann. Fór til hans á föstudags morgun þar sem það var kaffi um 4 leytið svo kvöldmatur um 7 leytið, 35 gestir.....

Svo á laugardeginum var vaknað klukkan 6 og morgunmatur klukkan 8, kaffi um 3 og kvöldmatur um 7.....og allann tímann sá ég um uppvask, barinn og taka af og dekka borð. Partýið var búið um 2 þá þurfti ég að vakna á sunnudeginum klukkan hálf 7 því það var aftur morgunmatur klukkan 8 fólkið fór um 10 þá þurfti ég að taka uppvaskið drífa mig að dekka broðin aftur og gera barinn kláran þar sem það var önnur veisla með 42 manns klukkan 1 og kom ég heim etthvað um hálf 11 um kvöldið.

Mig verkjar allstaðar:cry:  hef ekki verið svona hrikalega þreytt í langann tíma....að vísu bitnar þetta heilmikið á lokaverkefninu þar sem ég hugsa ekki skýrt, vona að ég verði betri á morgun;)

Annars er lítið af frétta af ökku baununum fyrir utan að við hlökkum til sumarsins, sérstaklega ég þar sem ég þarf ekki að hafa áhyggjur af þessum skóla framar og það styttist óðum í Roskilde Festilavið:haha:

I can't wait.....

Klaran 


» 1 hafa sagt sína skoðun

07.05.2007 15:31:26 / klaraz

3 vikur í skil....

Ég vil byrja á því og afsaka bloggleysið í mér...það er ekki það að ég sé löt við að blogga;)

Það er búið að vera mikið stress í gangi útaf lokaverkefninu en ég vona að ég fari að sjá endann á þessu öllu saman. Skýslan er allavegana komin á góða leið en þá er bara eftir að klára heimasíðurnar, myndöndin, grafík og binda skýsluna....

Ég get ekki beðið eftir þeim degi að ég er búin að skila...það á eftir að vera þvílíkur léttir!!!!

Annars er alveg ótrúlega lítið að frétta héðan annað en að Klaran fór í Ikea loksins og verslaði fyrir 4500 DKK....sem er nú alveg vel sloppið.... Ég keypti sófa, fótskemil, borðplötu, borðfót, bókahillu, sjónvarpsborð og skenk:haha: og sit ég núna í makindum mínum í nýja sófanum og er að klára að skirfa síðustu orðin fyrir markaðs hlutann í skýslunni. Ég fór að vísu til Íslands í viku...lét ekki neinn vita af því og lét engann vita þar sem enginn tími gafst til.....Enda var ástæðan fyrir Íslandsferðinni, var að mamma fékk gallsteina og þurfti því að fara í aðgerð svo fékk Eyþór flensu og enginn gat verið heima og passað hann, þannig að mamma hringdi í mig á sunnudegi fyrir 2 vikum síðan og ég fór morguninn eftir....

En ég kem svo aftur í júlí og verð aðeins lengur þannig að ég ætti að hitta einhverja þá;)

....Ætla að halda áfram við skrifin...

 

Klaran 


» 8 hafa sagt sína skoðun

18.04.2007 11:27:59 / klaraz

Inntökupróf....

Var að fá inntökuprófið mitt á mánudaginn sem ég þarf að skila inn fyrir föstudaginn svo að ég kominst inn í Design Technologist námið hjá BEC-Design.  Gengur svona ágætlega miðað við mínar aðstæður en ég er farin að halda að fólk í kringum við haldi að ég sé eitthvað heimsk, því að ég er því miður ekki á sama leveli og þeir:(

En ég ætla að komast inn í skólann og ef ég kemst ekki inn þá þarf ég bara að pakka niður öllu mínu og fara....því að ég er víst búin að missa íbúðina á kollegí-inu þar sem ég er að klára í vor.  En við þurfum að skrifa bréf og vonum að við náum að svissa yfir þannig að Hilmar verði skráður sem leigjandi á íbúðinni og ég verði meðleigjandi. En hann er líka að fara að byjra í nýju námi í haust....

Ég veit í rauninni ekki hvað ég á að skrifa hérna þar sem það er voða lítið að frétta héðan annað en stress og verkefna vinna.....jú...ég er að fara í Ikea eftir helgi og kaupa ný húsgögn og ég get ekki beðið eftir að losna við þessa ljótu stóla sem eru hérna inní íbúðinni:haha:

 

Klaran í stressi 


» 3 hafa sagt sína skoðun

12.04.2007 10:33:50 / klaraz

Extreme makeover....

Ég fór í smá fegrunaraðgerð og langaði mig að deila með ykkur útkomunni....

 

Hér er ég áður en aðgerðin hófst....

 

Það þurfti að soða augunn og....

....tennurnar

 

Hér er ég eftir aðgerðina....soldi bóglin

Smá pósur....

......

Hér er loka útkoman....

Hvað finnst ykkur?????

Klaran í extreme makeover.... 


» 4 hafa sagt sína skoðun

07.04.2007 16:27:48 / klaraz

Afsakið hlé....

Þá er ég komin til baka frá Íslandi og margt hefur daga mína drifið.

....Hitti og kvaddi ekki alla að vísu og ekki einusinni bræður mína þar sem þeir voru svo hrikalega uppteknir og gátu ekki kvaðið mann:(. En það er svosem ekkert langt þangað til að ég fer aftur til Íslands þannig að ég hitti og kveð hina bara næst....vonandi;)

Ég náði að vinna í lokaverkefninu og taka upp viðtal við hljómsveitina sem við erum að gera lokaverkefni um og loka lausum endum til þess að halda áfram.  Fór út og skoðaði næturlífið báðar helgarnar og vitið menn...Klara náði að næla sér í nokkra marbletti en hún er jú mjög fræg fyrir það....En ég skemmti mér vel þrátt fyrir að þurfa að haltra í 2 daga;)

Eftir þessar stanslausu skemmtanir og húllum hæ þá ákvað móðir mín kæra að smita mig af ælupest sem endaði með því að ég lá í rúminu á miðvikudaginn sem ég hafði engann tíma fyrir og er ég enn að jafna mig!!!!! En það átti að lagast í gær. Ég hélt að ég myndi deyja í gær áður en ég fór í flug þar sem ég lág hangandi úr stólnum þegar ég var að bíða á Leifstöð, þar sem mér var svo hrikalega óglatt...ég var búin að ákveða að lífið væri búið og ætlaði ég ekki í flugið hefði þetta nú haldið áfram.  En Klaran átti töfra töflur sem björguðu málunum þangað til að ég lennti hérna í Kaupmannahöfn og þá hófst sama sagan aftur, en er ég orðin skárri í dag....bara ný kona!!

Ég náði að vera svo hrikalega heppin í þessari Íslandsferð minni að losa mig við gömlu tölvuna og fékk mér nýja á tölvukaupalánum og fékk svo bara tax free ofan á það... þannig að ég fæ lán og græði svo 20.þús á því:haha:  Enda er ég svo grobbin af nýja meðliminum mínum en Hilmar ekkert sáttur yfir honum þar sem hann getur ekki gert mig öfundsjúka í augnablikinu;)

En annars er ekkert að frétta, eða ekkert sem ég get verið að skrifa hérna.....en ég ætla að fara og fá mér irish coffee og dást aðeins meira af nýja gripnum mínum....

En hlakka til að sjá þig Renata mín, þú ert alltaf velkomin, hvenær sem er:D

 

Gleðilega Páska....

 Klaran


» 2 hafa sagt sína skoðun

08.03.2007 18:16:35 / klaraz

kominn tími á smá blogg...

Það er svosem voða lítið að frétta héðan frá baunalandinu....er bara búin að sofa út alla þessa viku þar sem ég ákvað að fara ekki í skólann.

Er að fara til Renetu á morgun og er ég orðin soldið spenn, enda líka frekar langt síðan að ég hitti stelpurnar seinast:D

Svo styttist í ma og co....og er ég orðin það spenn að ég á erftitt með að sofna á kvöldin en þau koma á miðvikudaginn og fer ég með þeim til Íslands....

Lokaverkefnið fer vonandi á fullt núna, og verð ég að viðurkenna að ég er búin að vera hálf löt seinustu daga og hef lítið verið að vinna í verkefninu.

Hef voðalega lítið að segja....

En Renata hvað langar þið í afmælis gjöf?????????  Er eitthvað sem þig vantar?????  Ég er alveg ráðalaus:^)

Góða helgi

Knús

Klaran


» 4 hafa sagt sína skoðun

27.02.2007 19:26:54 / klaraz

just bla....

Þá er ég komin enn og aftur....

Fátt var gert um helgina nema að ég tók til í íbúðinni og breytti. Fór líka í Ikea að versla....og komst ekki hjá því að eyða smá pening:$

Fékk líka þá frábæru hugmynd að gefa stofuborðinu mínu nýtt líf og ákvað því að pússa það og lakka með svörtu lakki, klippti út myndir ú bæklingum sem ég hafði sankað að mér frá Berlín og setti á borðplötuna, og setti svo plast yfir til þess að festa þær. Ódýr og skemmtileg hugmynd og er ég alveg svakalega montinn á listamanninum í mér;)

Svo styttist óðfluga í mánaðarmót og get ég ekki beðið eftir að fá pening....svo vona ég svo innilega að Þórdís komi á föstudaginn...."ég hélt að þú ætaðir að senda mér SMS í dag Þórdís"...en helgin ætti að vera skemmtileg þar sem ég ætla að kíkja aðeins út á lífið, þar sem ég er orðinn ansi þurr hérna enda hef ég ekki farið út á lífið í svolítinn tíma.... 

Annars er lítið að frétta héðan út Baunalandinu annað en ég er að bíða eftir að ég byrji að vinna...svo að ég geti farið í Ikea og keypt sófa og fleira (hugsa ekkert um neitt annað þessa daganna)...og já sumrið.....

En það er nó af þessu bulli í mér í bili....

"Just bla..."

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

22.02.2007 11:38:23 / klaraz

....og það kom snjór

Jiii minn eini hvað danskar samgöngur eru fatlaðar þegar það snjóar hérna í Danmörku.....

Það hefur snjóað all mikið af dönskum mælikvarða en KOMMON það eru til vetradekk til þess að hindra það að þú skautir ekki um göturnar og skóflur sem riðja snjóinn af götunum. Í stað þess að gera þetta þá eru allir á heilsársdekkjum sem er jú í lagi (eru líka kölluð vetradekk) en mörg þeirra sem maður hefur séð hérna á götunum eru gatslitin og það er ekkert verið að skipta þeim út heldur bara vaðið af stað og út að keyra8| 

Svo er ekki notað skóflur til þess að riðja göturnar, heldur er notaðir sópar sem er bæði notað til þess að sópa upp ryk og rusl....heldur eru þeir líka notaðir til þess að sópa í burtu snjóinn og saltað yfir restina af snjónum sem er eftir.....

Hvað hefur komið fyrir????

Ég ætlaði að koma í skólann á réttum tíma....sem hefur ekki gerst b.t.w síðan ég var á 1. ári en NEI.....metróinn gekk ekki nema á 10-20 mínútna fresti út af snjónum...HALLÓ þetta er neðanjarðar lest sem fer aðeins út þegar þær eru að fara á endastöðvar og meri hlutinn að lestalínunum keyra ekki í dag út af snjónum. Ég var einn og hálfan tíma til þess að komast í skólann sem tekur mig venjulega 20-30 mín8|

Ég búin að skella uppúr af hlátri inní mér í dag....því að maður getur víst ekkert annað en hlegið af þessari vitleysu þar sem ég er jú 100% Íslendingur.

En ég komst heil í skólann og er þar enn í "video production" kúrsi sem hljómar mjög áhugaverður og vona ég að ég komist heil heim þar sem ég þarf að bíða endalaust eftir strætó....því að ég get ekki séð á hvaða tíma þeir koma....út af snjónum og svo þarf ég að bíða enn lengur eftir metróinu þar sem það er svo mikið að fólki að ferðast og kemur einhverntímann og einhverntímann....

 

Annars er lítið í fréttum héðan annað en að ég er enn að gera lokaverkefnið, styttist í Íslandsferðina og ég er búin að fá vinnu:haha:....

Ég fékk vinnu við að standa við bás í matvöruverslunum að kynna ýmsar vörur sem eru nýjar á markaðinum svo mun ég líka fara á skemmtistaði og kynna áfengi fyrir fyllibitturnar;) 

En ég ætla ekki að hafa þetta lengra því að tíminn er að fra að byrja....

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

18.02.2007 23:12:58 / klaraz

Ég á mér draum....

Ég er búin að vera miklum hugleiðingum og með mikla draumóra þessa daganna, að ég bara farin að halda að bleika skýjið mitt sé að nálgast mig hraðar en mig grunar;)

Þessir hugleiðingar og draumórar hjá mér byrjuðu þegar ég var að spá í hvað mig langaði að gera í framhaldi af diplómagráðunni minni og langar mig svo í nám sem er ekki til lengur... eða er vonandi búið að setja inn í aðrar hönnunar deildir....

Þannig að ég bara vona innilega að námið sem ég ætla að sækja um og KOMAST í bjóðu uppá eitthvað að því sem mig virkilega dreymir um að læra;) 

En hvað um það, nóg komið að námsmanna tali...

Mariam mín átti lítið sjarmatröll þann 6.feb og er hann alve yndislegur, og get ég ekki beðið eftir að fá að sjá hann.

Var í atvinnuviðtali á föstudaginn og fékk vinnu um leið og er ég að fara að vinna við að kynna vörur í matvöruverslunum og á skemmtistöðum; vín, bjór, matvörur t.d

En allavegana er ég mjög spennt fyrir þessu starfi og eitthvað sem ég hef aldrei prófað enda er gaman að fá að prófa eitthvað nýtt:D 

Annars er lítið í fréttum hérna frá baunalandunu annað en að lokaverkefnið fer að fara á fullt og styttist í að ég fari til Íslands, en það er komið á hreynt...ég kemt annað hvort 20. eða 21.mars og fer 6.apríl:haha:

Þannig að það er margt spennandi að gerast hjá mér á næstu mánuðum....

Klaran í hugleiðingum... 


» 3 hafa sagt sína skoðun

12.02.2007 23:03:30 / klaraz

Sögustund

Ég varð bara að setja þetta hérna inn, fann þetta á einhverri síðu....og jii minn ég er búin að hlægja mig  máttlausa....endilega kommentið það sem ykkur finnst:haha:

 


Einn daginn var maður að röllta


Þá kom hann auga á liggandi konu


Og þá byrjaði hringekjan


Svo stökk hann út í djúpu laugina..


Og bauð henni út að borða


Þau fengu sér pulsu og kók


Og ferðuðust saman um heiminn


.. fóru í hvaðaskoðun


Og á hestbak..


Hann fór með hana í nálægt sæluhús


Og hún sagðist vera á pillunni


Hún lagðist á rúmið


Og glennti í sundur á sér lappirnar


Og holdið fór að rísa á okkar manni.


.. og hann fór inn í göngin.


Inn og út.. Inn og út.


Hann fann strax að hún var ekki óspjölluð

The image ?http://www.veg.is/vefur2.nsf/cb42dd93b911fde800256935003ea5f5/d574dccc63f266310025700a003ac7e6/Body/0.966?OpenElement&FieldElemFormat=gif? cannot be displayed, because it contains errors.
Hann stakk upp á því að taka hana aftanfrá..

The image ?http://www.veg.is/vefur2.nsf/cb42dd93b911fde800256935003ea5f5/9d935ac6ae6512cd0025700a003ac76c/Body/0.118?OpenElement&FieldElemFormat=gif? cannot be displayed, because it contains errors.
En hún harðneitaði því!


Henni fannst hann ekki fara nógu hratt..

The image ?http://www.veg.is/vefur2.nsf/cb42dd93b911fde800256935003ea5f5/cc8249a8c45c28010025700a003ac79f/Body/0.1AC8?OpenElement&FieldElemFormat=gif? cannot be displayed, because it contains errors.
Og gerði grín af litla tólinu hans.

The image ?http://www.veg.is/vefur2.nsf/cb42dd93b911fde800256935003ea5f5/107640f37142b2160025700a003ac776/Body/2.3B1E?OpenElement&FieldElemFormat=gif? cannot be displayed, because it contains errors.
Svo hann kveikti á sleggjunni..

The image ?http://www.veg.is/vefur2.nsf/cb42dd93b911fde800256935003ea5f5/42f13687fe0a4f4b0025700a003ac797/Body/0.128?OpenElement&FieldElemFormat=gif? cannot be displayed, because it contains errors.
Og óð í öll göt sem hann sá.

The image ?http://www.veg.is/vefur2.nsf/cb42dd93b911fde800256935003ea5f5/1c911a37a7ef66d30025700a003ac78f/Body/0.112?OpenElement&FieldElemFormat=gif? cannot be displayed, because it contains errors.
Og þegar hún hafði séð alla liti regnbogans..


Öskraði hún STOP!

The image ?http://www.veg.is/vefur2.nsf/cb42dd93b911fde800256935003ea5f5/9cb5eec3a39d2a4e0025700a003ac746/Body/0.116?OpenElement&FieldElemFormat=gif? cannot be displayed, because it contains errors.
Því hún hafði ekki sagt honum sannleikann!

The image ?http://www.veg.is/vefur2.nsf/cb42dd93b911fde800256935003ea5f5/86a81103b2093a110025700a003ac79d/Body/0.B08?OpenElement&FieldElemFormat=gif? cannot be displayed, because it contains errors.
Hún var ekki á pillunni!

The image ?http://www.veg.is/vefur2.nsf/cb42dd93b911fde800256935003ea5f5/267199dc0b647b030025700a003ac761/Body/0.122?OpenElement&FieldElemFormat=gif? cannot be displayed, because it contains errors.

Hann missti stjórn á sjálfum sér

The image ?http://www.veg.is/vefur2.nsf/cb42dd93b911fde800256935003ea5f5/b15f49e2979dc5660025700a003ac7c3/Body/0.2462?OpenElement&FieldElemFormat=gif? cannot be displayed, because it contains errors.
Og missti stjórn á fleiru ....


Fékk nóg og gekk út!

The image ?http://www.veg.is/vefur2.nsf/cb42dd93b911fde800256935003ea5f5/05c50df5fedef2450025700a003ac78c/Body/0.1ED6?OpenElement&FieldElemFormat=gif? cannot be displayed, because it contains errors.
9 Mánuðum seinna hringir hún..

The image ?http://www.veg.is/vefur2.nsf/cb42dd93b911fde800256935003ea5f5/46e9922d542646810025700a003ac76b/Body/0.244?OpenElement&FieldElemFormat=gif? cannot be displayed, because it contains errors.
Af sjúkrahúsinu..

The image ?http://www.veg.is/vefur2.nsf/cb42dd93b911fde800256935003ea5f5/66c36ebb238781d60025700a003ac757/Body/0.10A?OpenElement&FieldElemFormat=gif? cannot be displayed, because it contains errors.
Hann var orðinn pabbi!

The image ?http://www.veg.is/vefur2.nsf/cb42dd93b911fde800256935003ea5f5/c90b33a9dba843770025700a003ac7ad/Body/0.EC0?OpenElement&FieldElemFormat=gif? cannot be displayed, because it contains errors.
Hann vildi ekki fjölskyldu..


Lífið hans hrundi!

The image ?http://www.veg.is/vefur2.nsf/cb42dd93b911fde800256935003ea5f5/d0d13f817de9150e0025700a003ac80d/Body/0.1C8?OpenElement&FieldElemFormat=gif? cannot be displayed, because it contains errors.
Og eftir það lá allt niður á við..

The image ?http://www.veg.is/vefur2.nsf/cb42dd93b911fde800256935003ea5f5/18b9e74f3cac818c0025700a003ac7a9/Body/0.1810?OpenElement&FieldElemFormat=gif? cannot be displayed, because it contains errors.
Og hann vildi bara deyja..

The image ?http://www.veg.is/vefur2.nsf/cb42dd93b911fde800256935003ea5f5/a4162ab837f751980025700a003ac7d7/Body/0.110?OpenElement&FieldElemFormat=gif? cannot be displayed, because it contains errors.
Og boðskapurinn með þessu er..

The image ?http://www.veg.is/vefur2.nsf/cb42dd93b911fde800256935003ea5f5/aae89a983797ef530025700a003ac788/Body/0.11A?OpenElement&FieldElemFormat=gif? cannot be displayed, because it contains errors.

Ef þið viljið ekki gera stelpu ólétta..

 

 

    NOTA SMOKKINN!!!!!


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 15